Færsluflokkur: Bloggar

Flökkueðli varmans

Varmi flyst á milli hluta með þremur aðferðum, varmaleiðingu, varmaburði og varmageislun. Varmaleiðing virkar þannig að þegar teskeið úr málmi er sett út í heitt eða kalt vatn hitnar hún eða kólnar vegna þess að varmi úr vatninu flyst í hana. Varmaburður virkar þannig að ef að það er kveikt á ofni í herbergi hitnar herbergið. Varmageislun virkar þannig að ef þú liggur í sólbaði finnur þú varma frá sólargeislunum.

Er massi hlutar ekki sama og þyngd hans?http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=40

Massi hlutar er ekki sama og þyngd hans. Massi er stærð sem breytist ekki, þótt maður færi upp á Everest-fjall, til tunglsins eða niður á mesta dýpi sem til er, nema að maður bætir einhveju við eða að maður tekur eitthvað af honum. Hinsvegar er þyngd eitthvað sem breytist vegna áhrifa frá öðrum hlutum. Ef maður færi til dæmis til tunglsins myndi þyngd manns minnka vegna þess að tunglið er svo létt og lítið og minna en jörðin. En ef maður færi til Júpíters, þá myndi maður verða þyngri.

Hæjj...

Sælt veri fólkið. Ný síða. Endilega commenta.Wink

Bæjj... 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband